Ég hef tekið eftir því að það eru mörg lið með alveg uppí 4-5 lið sem feeder club. Ég get bara beðið stjórnina um að finna þannig lið en það er bara hægt einu sinni á tímabili. Á það að vera þannig eða ? Það er ótrúlega pirrandi að geta ekki bara valið nokkur lið og haft þau í staðinn fyrir að bíða eftir að tímabilið er búið. Svo kemur stjórnin líka með nokkur lið sem hún segir að komi til greina en velur svo bara fyrir mig og ég get ekkert beðið þá um eitthvað eitt lið frekar en eitthvað annað. Svo var einn gaur hjá mér sem þurfti að fá atvinnuleyfi en ég gat ekki sent hann til svona feeder club. Hélt einmitt að ég ætti að gera það til að hann gæti fengið atvinnuleyfi. Er með Aberdeen og Lierse frá Belgíu sem feeder club.