Sælir/ar.

Í þessum töluðum orðum er ég að “installa” leiknum ;)
Ég bíð spenntur eftir að sjá hvernig leikurinn kemur út og þessvegna spyr ég ykkur sem hafa nú þegar orðið sér útum eintak, er leikurinn að standast undir væntingum eða er hann að stíga skref aftur á við?

Ég skaust í BT rétt fyrir lokun til að tryggja mér eintak af leiknum og greiddi ég 3.990 krónur! átti hann ekki að kosta 4.990? :)

Ég prófaði demo-ið ekkert af viti þar sem ég ákvað að bíða eftir öllum leiknum. Feeder clubs, fannst mér algjör snilld! Á eftir að notfæra mér það töluvert. Hvað finnst ykkur um nýjunga í leiknum ?
Eitthvað sem mætti bæta við eða jafnvel taka út?

ps. Veit ekki hvort þessi þráður eigi við en þar sem það var lítið að gerast og ég hef ekki verið virkur í umræðunni ákvað ég að gera eitthvað í mínum málum :)