Jæja þá er það loksins að fara að gerast, CFM.Stuff.is er að fara að opna að nýju eftir langa dvöl.

Ákveðið hefur verið að opna hana fyrst um sinn án margra hluta sem verið hefur verið að vinna að, þ.e.a.s til að byrja með verður hún ekki 100% eins og hún mun verða (þá er ekki verið að tala um útlitslega séð, það er allt sama tilbúið).
Það sem verður á henni ætla ég ekki að fara að telja allt upp hér enda myndi enginn spenna þá vera í því fyrir ykkur. Heldur ætla ég að segja ykkur aðeins frá því hvað verður núna fyrst og hvað mun gerast.
M.a sem verður á síðunni eru fréttir úr CM og FM heiminum, allskins download fyrir CM og FM(ath. einnig fyrir eldri leiki), leiðbeiningar fyrir CM og FM og margt margt fleira.

Það sem aðallega er eftir að gera til að síðan geti farið í loftið er einungis að ‘beta testa’ hana, þar að segja mig vantar nokkra til að bjóða sig fram að prufa og reyna síðuna og segja mér hvað mér er að yfirsjást og hvað mætti fara betur.
Því óska ég þess hér að þeir sem hafa áhuga að hjálpa örlítið við að koma henni í loftið sendi mér línu og sæki einfaldlega um.


Það sem fram þarf að koma:

Nafn þitt, e-mail, afhverju þú vilt gera þetta, og hvort þú hafir einhverja reynslu í vefsíðugerð (allgjörlega ekki nauðsynlegt, vil bara fá einhverja sem kunna eitthvað í vefsíðugerð og einhverja sem kunna ekkert)

umsóknir sendist á jonnif (att) gmail.com