Hvað eru lengstu meiðsli sem leikmenn ykkar hafa verið í??

Allavega hjá mér(Barcelona) var það Aaron Lennon, hann var frá í 3 ár, hné á honum maskaðist víst eitthvað “smá”. Hann var að pæla hvort hann ætti ekki bara að leggja skóna á hilluna. Ég reyndi að tala hann ofan af því, og það endaði með því að ég bauð honum nýjan samning uppá 99þús pund á viku. Fégráðuga andskoti, en það borgaði sig. Lykilmaður á hægri kantinnum, sem og í landsliðinu.
Man að tölurnar hans lækkuðu alveg rosalega, hann var td með 15 í einhverju, og það var dottið niður í 3 eða ca þannig. Verðið á honum lækkaði líka úr 7 M punda niður í 325þús pund. Og var morallinn hans very poor allan tímann. En svo hækkaði þetta allt á met tíma, hann kostar núna ca 18M punda.
Ótrúlegt en satt :Þ