CHAMPIONSHIP MANAGER™ 2006

Útgáfudagur PC útgáfunnar tilkynntur

Eidos Interactive, hefur staðfest útgáfudag fyrir PC útgáfu Championship Manager 2006, en leikurinn verður gefinn út 31.mars 2006.

Leikurinn er gerður af Beautiful Game Studios (BGS), þessi nýja 2006 útgáfa leiksins inniheldur fjöldan allan af nýjungum og er raunverulegasti leikurinn hingað til, þar sem tölur leikmanna hafa verið teknar í gegn. Þetta er eini leikurinn á markaðnum sem mun innihalda öll leikmannaskiptin í janúar glugganum!

Leikurinn inniheldur frumlegar nýjungar á borð við hina byltingakenndu Gameplan grafíkvél þar sem hægt er að sjá leikina spilast í þrívídd sem glæðir leikdagana lífi, einnig er heimur leiksins mjög lifandi, þannig að spilarar geta fylgst með keppnum annarra landa, fylgst með spennandi leikmönnum, og einnig geta knattspyrnustjórar leiksins haft meiri samskipti við leikmenn.

Aðal þjálfari Charlton Athletic, Mervin Day, hefur unnið að leiknum við að tryggja að þrek og þol leikmanna sé líkt og það er í raunveruleikanum. Þar að auki eru viðskipti með leikmenn mun raunverulegri en áður og munu félögin rífast um verð leikmanna, einnig geta spilarar lært inná andstæðingana áður en þeir mæta þeim og svo geta spilarar einnig ákveðið að láta milljarðamæring taka við og dæla inn seðlum. En athuga skal að því meiri peningar, þeim mun meiri er krafan um árangur.

Championship Manager 2006 gerir þér kleift að stýra knattspyrnufélagi til sigurs, takast á við allt frá taktík og þjálfun að viðskiptum með leikmenn – allt sem þú myndir geta búist við að gera sem alvöru knattspyrnustjóri.
——–

Lýst bara ágætlega á þennan leik.
Sucre: “If you can get eight people out of prison, you can get my puerto rican ass out of this… can't you?”