Núna ætla ég að spyrja ykkur sem spilið þennan leik hvað ykkur finnst um ákveðið málefni.

Ef þið byggjuð til lið sem samanstæði eingöngu af vinum ykkar, með þeirra nöfnum, hæð, þyngd, fæðingarstað, persónuleika og öllu því, telduð þið ykkur vera að svindla til að ganga vel í leiknum (ef þið settuð háa, ekki fullkomna en háa stats á þá) eða mynduð þið bara telja þetta saklaust fun?

Mér hefur verið bent á að sumir telji þetta svindl, sem ég get ekki skilið því ég hef einmitt gert svona og þá bara til að skemmta mér við að ráða yfir vinum mínum og að sjá þá kannski skora mark á móti stóru liði eða e-ð þannig. Ef ég væri að svindla myndi ég gera fullkomið lið með bestu leikmönnum heims, en hérna er ég bara að skemmta mér við að leika mér að vinum mínum.

Takk fyrir svör, ef þau verða e-r, og vonandi er ekki bannað að ræða um þetta.