Sælt veri fólkið!

Þetta er með mig eins og hann Össur við stígum úr ábyrgðarstöðu og förum þá loks að segja hug okkar.

Hvað er málið með ykkur notendur /manager?

Þetta er áhugamál sem ólíkt mörgum hefur upp á svo mikið að bjóða.
- Sögur
- Keppnir
- Fullt af myndum
- Leikmannagreinar
- Og margt fleira

Hvers vegna eru notendur hér ekki virkari? Ég bara verð að spyrja.

Ég hvet ykkur ÖLL til að drattast á fætur (ekki bókstaflega) og fara að stuðla að því að það komist á fót öflugt manager samfélag hér á Íslandi eins og þekkist í langflestum öðrum löndum. Íslendingar gætu eins og aðrir lært að gera sín útlit fyrir FM, eins og bludgeon hefur verið að gera gert sínar uppfærslur með nýjum leikmannaviðskiptum.

Við getum þetta líka!

Sýnið hvað í ykkur býr og stuðlið að öflugu manager samfélagi á Íslandi,
Baráttukveðjur frá fyrrum stjórnanda,
Cablegram.