Jæja núna er ég búinn að þræða champ 00/01 algjörlega, ég er búinn að prófa nánast hverja einustu deild og alltof mörg lið. Alltaf lendi í vandamáli að vera ekki með góðan markmann! Ég var að byrja á tjill seivi núna með gömlu góðu ríku og ósigrandi Barcelona. Dutruel getur ekki rassgat hjá mér og gerir það yfirleitt ekki, ég nenni því ekki lengur því ég er að fá óþarfa slatta af mörkum á mig. Ég kaupi Buffon en hann getur ekkert heldur! Ég er búinn að prófa nánast alla bestu markmennina í leiknum og ég held bara að eini góði sé Oliver Kahn og vill aldrei fara.

Ef þið lumið á einum rosalegum þá endilega deila!! Ég nenni varla að fá eitthverja leikmenn eins og Johann Öberg eða Hellström sem maður þarf að bíða í 5 tímabil til að hann geti eikka. Thomas Sörenssen er reyndar helvíti nettur.