Næstum rétt hjá þér… ég er að tala af reynslu sko… það ER hægt að klára tímabil í netplayi með 8-12 spilurum á einni helgi. Leikurinn styður mest 16 spilara í einu (eða mig minnir það) og hann er hannaður með netspilun í huga :) stærð leiksins segir lítið um það hversu hraðvirkur hann yrði á neti (ég er að spila BG2 og ég veit ekki betur en að hann sé 4X stærri en CM og hann virkar fínt með 6 spilara :) )
Ekkert bögg þetta er snilldarhugmynd ;o). Í það minnsta er það svo miklu skemmtilegra að spila á móti alvöru manneskju en á móti tölvunni, þannig varð ég ástfanginn af leiknum í fyrsta skipti, spilaði hann fyrst á móti frænda mínum og við kláruðum 5 season á nokkrum vikum. Netspilun er málið, það þarf bara að skipuleggja hana aðeins.
Þangað til síðar…