Ég var að spila með Arsenal í Finland update (sjá fyrri grein) Mér gekk brösulega til að byrja með, en já svo fór mér að ganga frábærlega, var kominn í undanúrslit UEFA cup var búinn að vinna sex leiki í röð í deildinni og var kominn uppí þriðja sæti… og þá var ég rekinn!

Það gerist ekki að frkvstj. sé rekinn eftir 6 sigurleiki í röð, flesta mjög stóra.

Ég var meira að segja búinn að tryggja mér Sammy Eto og Kapo eftir tímabilið, þannig að ég sá fram á bjarta tíma!

Frekar fúlt, en felur ekki þá staðreynd að ég átti náttúrulega að gera betur með þessa menn innanborðs!

p.s. hvet alla til að dl finland update.. eins og að spila nýjan leik!
ÍKORNI