Góðan daginn, nú vantar mig hjálp, ég er allveg ráðalaus, ég er í CM4 og get ekki unnið leiki lengur.
Ég tok við AC Milan og fyrsta árið vann ég nánast allt! Meistara deildina, runner-up í Bikarnum og meistari í Serie A, annað árið gekk þetta frekar svona ryðgað er í 4.sæti í Serie A og næ að klóra aðeins í bakkann og kem mér í 2. sæti og vinn meistara deildina.
Okei allt í gúddí ég fer síðan á 3. tímabil og er núna hættur að vinna leiki!
Ég var í 1. sæti í Serie A og rúllaði upp riðlinum í meistara deildinni. Núna er ég byrjaður að tapa fyrir liðunum sem eru í fallsætunum og allveg sama hvað ég geri hvernig ég stilli liðinu upp eða hvað ég geri, það gengur ekki neitt, þeir NÝTA EKKI FÆRIN.
Þessir gaurar sem ég er með neita því stundum að skora, Andriy Shevcneno, Pippo Inzaghi, Rivaldo, og nýlega keypti ég Ronldinho, en ekkert gengur.
Ef einhver veit hvað skal gera, endilega SVARAÐU. :)