Jæja maður hefur verið að velta því fyrir sér undanfarnar vikur jafnvel mánuði af hverju það koma ekki nýjir stjórnendur inná áhugamálið. Svo gerist það að Cablegram kemur eins og þruma úr heiðskíru lofti og ætlar sér ásamt Jessalyn að rífa áhugamálið uppúr skítnum sem það hefur verið í undanfarna mánuði.

En það sem ég vildi koma á framfæri er það að mér finnst að það ætti að fara að skipta um stjórnendur hér. Pires og snowler hafa ekkert gert fyrir þetta áhugamál, bara so sorry en þið hafið ekki verið að standa ykkur og þess vegna er ég mjög sáttur við Cablegram.

Ég væri til í að sjá þá segja af sér og gefa eitthverjum öðrum tveim tækifæri á því að sanna sig sem stjórnendur á þessu áhugamáli.

Takk fyrir mig