Ég ætlaði að taka mig til og pósta nokkrar CM myndir hérna. Ég vissi að þær yrðu að vera takmarkað stórar en hélt samt að mér tækist að koma sem flestu til skila jafnvel þótt að ég þyrfti að cuta bara smáatriðin úr og pósta þau. Af einhverjum 20+ myndum tókst mér að finna 2 myndir sem ég gæti cutað niður án þess að skemma innihaldið.
Því segi ég, það verður að breyta leyfilegri stærð mynda á þessu áhugamáli, það er ekki nokkur spurning!

Ef sem flestir pósta með því er aldrei að vita….