Jæja, ég sendi Reykdalnum E-mail áðan þar sem ég óskaði eftir admin réttindum með þeim skilyrðum að réttindum annara “stjórnenda” hérna verði tekin af þeim því það er ekkert að gera með menn hér með réttindi en gera ekki handtak.

Ég ekki hugsað mér að gera neinar róttækar breytingar í sjálfu sér strax en þó munu stærstu breytingarnar verða þær að hér mun vera admin sem mætir inn á áhugamálið og sinnir því og það er töluvert meira en það sem hægt er að segja um núverandi “stjórnendur”.

Í framhaldi vil ég endilega fá til liðs við mig góða menn til að stjórna þessu með mér og gera þær breytingar sem þarf að.

Endilega sýniði mér og þessu áhugamáli stuðning með því að svara hér og lýsa yfir stuðningi við mig eða vantrausti ef það er það sem þið viljið frekar.


Með von um gott áhugamál.
Bee