Ég get ekki gert neitt í Cm (00-01). Ég get startað leiknum en ef ég ætla að búa til nýtt save eða load-a kemur alltaf sama villan, að það sé ekki nóg minni á lausu, ég þurfi að fría minni og reyna svo aftur. Þetta stenst ekki þar sem ég er með 1024 MB vinnsluminni. Ég hélt kannski að þetta væri útaf formöttunum og leikurinn væri í einhverjum registry-vandræðum en svo setti ég 01-02 inn í gær og þá kemur þessi villa líka! Ég komst síðan að því þegar ég ýtti á ctrl+alt+del að leikurinn tekur upp allt það sem örgjörvinn á eftir og setur nýtinguna á honum í 99!

Hefur einhver lent í þessu og veit hvernig maður getur lagað þetta? Er að keyra Win Xp.
_ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _