Ég var loksins að fá FM í hendurnar og er búinn að vera að spila eins og ég veit ekki hvað. Ég er búinn með eitt season með Fiorentina og gengur svona lala. En málið er að mig vantar einhverja solíd taktik. Ég er búinn að vera að prófa hitt og þetta en ekkert virðist ganga. Er einhver þarna út með alveg skothelda taktík sem hann getur lítð mig fá/sagt mér frá?

Og eitt annað, hvar dl ég eiginlega öllum myndunum á leikmönnunum? Ég er búinn að prófa CM.STUFF.is en ég veit ekkert hvað af þessu drasli ég á að ná í. Þó þetta sé alveg massíf síða en það mætti útskýra betur hverju maður er að downloada. Var t.d. endalaust lengi að fatta hvað þetta ,,lagar þýska vandamálið" er. Og eitt en hvað er english superpack?