Ég var að pæla hvort það væri hægt að gera eitthvað svo að FM verði hraðari. Ég er með alveg fína tölvu og ekki það margar deildir held ég(u.þ.b 26) en samt gengur þetta alveg hrottalega hægt. Það furðulega við þetta er líka að tölvan virðist ekki vera á fullu þegar ég er í leiknum, kemur bara sona einstaka blikk á örgjörvadæminu þegar ég er að load-a eitthvað.
Svo var ég líka að pæla hvort það sé hægt að gera eitthvað til að fá leikinn úr full-screen? svo að ég geti gert eitthvað á meðar tölvan þykist vera að vinna.
Chelsea till I die!