Annað skipti sem ég posta um þetta en ég fékk ekkert svar síðast, allavega…

Hefur einhverjum sem spilar lið í íslensku deildinni fengið svar um það hvort leikmaður hafi fengið vinnu heimild (work permit) eða ekki? Það sem gerist alltaf hjá mér er að eftir að leikmaðurinn hefur samþykkt samning við mig bíður hann bara endalaust eftir vinnu heimild og ég fæ aldrei svar um hvort hann hafi fengið hana eða ekki.

Ef þetta er bara ég þá er þetta svosem allt í lagi en ef þetta er svona hjá öllum þá væri best að posta um þetta sjá sigames þannig að þetta verði lagað í patch-i
ALL GLORY TO THE HYPNOTOAD!