Ég hringdi í dag í þrjár verslanir í dag og spurði hvort þeir vissu hvort að leikurinn myndi koma til þeirra fyrir helgi…

Skífan: Sögðu að þeir gætu ekki lofað neinu um það og voru bara hreinlega ekki viss!!

BT: Bjuggust við því að leikurinn myndi koma fyrir helgi en voru ekki 100%, sögðu að í bæklingnum sem kemur út á fimmtudag verður sagt frá því hvort að hann komi fyrir helgi eða ekki!

Elko: Sögðu að hann væri ekki á listanum yfr það sem ætti að koma fyrir helgina en annað myndi koma í ljós seinna!

Svo að miðað við þetta þá er BT eina verslunin sem telur að hann komi fyrir helgi en það verður bara að koma í ljós á næstu dögum!!

Eru menn annars ekkert byrjaðir að vera spenntir fyrir leiknum?? Ég er að deyja úr spenning, ætla pottþétt beint í íslensku deildina þegar hann kemur út en miðað við demóið þá er íslenska deildin ekkert mjög vel gerð hvað varðar leikmannakaup og fleira en ég vona að það verði lagað áður en að leikurinn sjálfur kemur út.