Ég var að pæla í því hvort þið hafið einhvern tíman vitað um einhverja gaura sem hafa verið búnir til. Þegar ég var með Wigan Athletic í fyrstu deildinni á öðru tímabili eða þriðja þá fékk ég tvo leikmenn og annar var búinn til(man ekki hvor það var) annar Michael Senior hinn Derek Tobin(held að það hafi frekar verið tobin) en þeir voru drullu góðir og brilleruðu svo þegar ég byrjaði nýtt save þá var annar þeirra ekki til og hinn gat ekki rassgat en ég hef síðan þá aldrei lennt á góðum leikmanni sem var búinn til. Var þetta bara heppni á leikmann sem var búinn til eða er eitthvað fyrirkomulag um gaura sem eru búnir til