Ég er sammála því að leikurinn þurfi að vera erfiðari og þess vegna er þetta með þokuna mjög góð hugmynd. Mér finnst vanta svona í leikinn þar sem maður getur áhveðið að láta assistant managerinn stjórna og fara sjálfur að fylgjast með leikmanni sem maður hefur áhuga á. Það væri gaman að sjá svona fleiri möguleika fyrir managerinn þar sem maður gæti farið í samningaviðræður við lið og slíkt. Í sambandi við hugmyndina um að sjá leikinn þá væri gaman að því í framtíðinni að maður gæti séð leikinn frá hliðarlínunni og labbað um eins og svaka töffari þarna og fara síðan og tala við aðstoðardómarann.