Ég vil byrja á því að taka það fram að ég er búinn að skoða “CM4 Idiots guide að network leikjum.”

Allavega þá ætlaði ég að skella mér í network game með vini mínum en fæ það engann veginn til að virka. Við erum ekki að spila þetta í gegnum LAN heldur bara í gegnum netið. Ég skil ekki alveg hvernig þetta er gert, en þetta er það sem við höfum gert hingað til. Annar okkar hakar við Run as Server fer svo í start new game, þegar það er búið þá reynir hinn að joina og setur inn IP-Töluna en þá kemur bara error.

Það var ekkert mál að fá þetta til að virka í gömlu leikjunum en þá var líka hægt að fara í Start new newtwork game en það er ekkert svoleiðis sem hægt er að velja hjá okkur. Við erum báðir með sama versionið af leiknum en samt er þetta allt í hassi.

Það væri fínt ef einhver gæti sagt mér hvernig á að gera þetta og það sem fyrst þar sem mig þyrstir í einn good shit CM leik…