Ég er að tapa mér, var að kaupa 03/04 og þetta er ekki að gera sig. Ég get bara quick startað leik, en þegar ég reyni að fara í “start new game” s.s. búa til alvöru save, þá er allt í lagi, vel deildina sem ég ætla a spila, hún byrjar að loada en eftir 3sek þá hættir forritið að svara. Mér fynnst þetta frekar skrýtið, og veit ekkert hvað er að gerast. Hef prófað að installa leiknum aftur og re-starta tölvunni og allar kúnstir en það á ekki að gerast að leikurinn fari í gang. Þetta er frekar pirrandi, veit einhver hvað er best að taka til bragðs?