Er búinn að eiga CM4 leikinn í nokkra mánuði, reyndar er ég ekki búinn að spila hann mikið, en ég fattaði af hverju það væri þegar ég fór að spila hann í gærkvöldi..Hann er ekkert smá pirrandi þessi útgáfa af leiknum. Er mikill aðdáendi leiksins og beið ég í mikilli eftirvæntingu eftir CM4 en hann er ekki uppfylla þær góðu væntingar sem ég hafði.

Í fyrsta lagi: Ég var t.d. Man.Utd í gær og þegar ég var byrjuður á undirbúningstímabilinu þá fóru allir aðal gaurarnir hjá mér að meiðast í hrönum, eins og gerist alltaf. Nistelrooy í 4 mán, Nicky Butt í 5 mán, Giggs í 11 mán, Forlan í 6 mán, Ferdinand í 5 mán, og Scholes í 4 mán…Þetta gerist alltaf hjá mér. Veit einhver af hverju ????

Í öðru lagi: Þegar að þessi meiðsli fóru að herja á mitt lið þá reyndi ég að fara á leikmannamarkaðinn að kaupa leikmenn en það var hægara sagt en gert. Ég var með 23m en ekkert gekk að kaupa. Um leið og það var samþykkt tilboð þá komu leikmenn eins og Jardel sem var ódýr og vildi komu með einhverjar FÁRANLEGAR launa kröfur. Ég bauð 60 þúsund pund á viku en hann sagði að það væri hneyksli - hvaða RUGL er það ??? Það var bara lífsins ómögulegt að fá leikmenn. Bauð 20m í Eið Smára og Vassell en ég var ekki nálægt því að kaupa

Í þriðja lagi: Þegar gekk svona illa á leikmannamarkaðinum þá reyndi ég að selja leikmenn til að afla mér meiri pening, því að liðin voru að biðja um mikla pening fyrir sína leikmenn og ég var orðinn mjög örvæntingarfullur því að allir voru meiddir hjá mér og seasonið að byrja. Ég setti t.d. Phil Neville, Richardsson, Fortune, Chadwick, Lynch, og einhverja spaða á sölulista. Nokkur lið fóru að bjóða í þá en þeir náu aldrie samkomulagi við þau lið sem voru spennandi og það voru lið eins og Leeds, Everton og Newcastle. Ég læt þá vita að ég vildi ekkert með þá hafa en allt kom fyrir ekki - þeir bara náðu aldrei samkomulagi…Hvernig stóð á því !!!

Þannig að ég var orðinn massa pirraður á þessu og hætti bara eins og vanalega. Venjulega í eldri leikjunum er ég vanur að spila fram í rauðan dauðann en í þessum leik hef ég aldrei haft þolinmæði í að spila meira en eitt season og það var með Aston Villa og það gékk óvenju vel…

Eru þið með einhver ráð handa mér…I would really appriciate it !!!!