Mig vantar aðstoð ykkar í þessu máli! Þannig er mál með vexti að ég er kominn á 5 tímabil og á að fara að leika á móti Newcastle í meistaradeildinni en hef ekki mannskap í leikinn því það eru það margir í landsleikjum. Og ég sé að þeir ná ekki einu sinni í lið og ef eitthvað þá eru þeir með færri menn en ég. Vinsamlegast ráðleggið mér hvað ég get gert því annars er ég fastur í leiknum því ég næ ekki nema í 8 manna lið.