Það eru ekki allir sem vita hvernig á skipta um bakgrunn í CM4 svo að hér er smávegis hjálp.
Eins og margir vita hægir það á leiknum að hafa bakground changes á. Þetta þýðir auðvitað að við verðum að horfa á markvörðinn í hvert einasta skipti sem við spilum leikinn. Þetta er ekki besta mynd í heimi svo að við viljum skipta.

Skref 1: Leitið að bakgrunns mynd á CM síðum eða búið til ykkar eigin ef þið kunnið. (ætla einnig að benda á að mynd af föngulegri konu hefur aldrei skemmt fyrir ;)

Skref 2: Opnið CM4 möppuna sem er vanalega staðsett undir C:Program Files\\CM4 svo er valið \\data\\graphics\\backgrounds\\default

Skref 3: Finnið skrá sem heitir „default“ og endurskýrið hana (t.d. sem Mynd) látið myndina sem þið viljið frekar hafa í möppuna og endurnefnið hana Default.

Skref 4: Byrjið á ný í leiknum (ekki þarf að byrja á nýju save-i) og sjá nýja myndin á að vera komin.

ATH! Virkar aðeins ef að background changes eru á off.

Ef þið lendið í vandræðum með þetta sendið mér skilaboð