Ég held að ég hafi verið að upplifa mitt versta augnablik í 10 ára spilunarsögu CM rétt áðan.

Ég er með Southampton á fyrsta tímabili og var bara búið að ganga djöfulli vel, Beattie gjörsamlega að raða inn mörkum. En svo lenti ég í alveg svaðalegri meiðslahrinu, og mætti svo Liverpool á útivelli án 5 eða 6 byrjunarliðsmanna. Ég sá gjörsamlega aldrei til sólar í leiknum, náði ekki skoti á mark en Liverpool 19. Ég sá liðið mitt aldrei komast yfir miðju í 2D-vélinni. Leikurinn endaði 7-0 og Owen fíflið skoraði þrennu.

Pirr..<br><br>___________
<i>“Bandaríkin ERU FULLKOMNASTA og þróaðasta ríki veraldar, undir forystu snillingsins og konungsins George W Bush.
Hann er valdið og hann er drotnarinn.”</i>

-Geðsjúklingurinn og Hugarinn NickCarte