Jæja ….. ég get ekki gert “Release media story” í mínum CM4 …. sem sökkar, en ég kenni nocd crackinu um …. en allt í lagi með það, ég var að klára fyrsta tímabil með Milan, og vann auðvitað deildina, og fyrri bikarleikinn …. og næsti leikur hjá mér er úrslit meistaradeildar á móti AS Roma …. bara einn galli, Confederations Cup er að fara að byrja, svo að meira og minna byrjunarliðið mitt er fráverandi!!!! AAAAAAARRGHH!!! Mig vantar Dida og Thuram, Rivaldo, Leonardo … fyrir utan það að Andryi Shevchenko, sem er búinn að brillera og skora 43 mörk á tímabilinu meiddist í næstsíðasta leiknum í deildinni, frá í 2 mánuði vegna þess að öxlin á honum datt úr lið! Ojjbara hvað ég varð brjálaður, svo er Wayne Rooney líka meiddur … svo að ég hef bara Filipo Inzaghi til að hafa frammi :( svo er auðvitað Kim Kallström meiddur líka til að gera þetta aðeins skárra ….. en ég horfi til bjartari framtíðar, Robert Pires kemur á 17 millur þegar næsti gluggi opnast … jibbí :)