Það er alveg merkilegt undur að sjá þá sem svara hjálparbeðni fólks með CM4 og það virðist þurfi yfirleitt að svara þá beðni með leiðindum og að drulla yfir viðkomandi.Ég hef oft tekið eftir þessu! Þetta virðist vera stjórnendur jafnt sem aðrir lesendur! Ég mæli með því að þó að hjálparbeðni sem virðist vera einföld fyrir svarandan þá hjálpi svarandin viðkomandi með það og útskýri en staðin sleppi því að vera með háðglosur um viðkomandi og leiðindi. Það getur verið ósköp saklausar ástæður og eðlilegar að fólk viti ekki svarið þó að það virðist einfalt! Mæli með því að fólk sem getur ekki svarað eðlilega sleppi því að svara og þannig verður bara skemmtilegra að lesa á þessum vef! Þessir kallar sem sjá um stjórna eiga ekki vera svona kallar með titill og gera ekki neitt. Þeir eiga líka að sjá um að fólk hagi sér og þeir verða að haga sér! Kannski sjáum við lesendur góðir ástæðuna fyrir því að ég skrifa þetta bréf þegar fólk svarar þessu bréfi:)