Aftur skrifa ég um þetta demo af þessum frábæra leik. Ég sótti það um daginn og það er frekar mikið “slow” hjá mér. Ég var í því aðan og eftir alla leiki sem ég spila þá er leikurinn í hálftíma eða lengur að slá inn öll önnur úrslit dagsins. Vinur minn var í annarri tölvu og á meðan hann tók þrjá leiki var ég ennþá að bíða eftir að leikurinn kláraði að slá inn úrslitin.

Skiptir það máli hvar maður nær í demoið eða er þetta stillingar atriði eða hvað?