Í gær fékk ég yndislega skemmtilegan póst frá Mark Woodger hjá SI-games þar sem mér var tilkynnt að ég gæti sótt BETA-útgáfuna af CM4 til prufukeyrslu. Honum fannst það leiðinlegt að að ég gæti ekki prófað íslensku deildina en þegar ég var búinn að taka við mínu liði, LIVERPOOL og spila nokkra leiki þá var mér svo sem alveg sama. Þó að leikurinn sé ennþá fullur af böggum og göllum, þá er hann ÆÐISLEGUR!!!!!!!!! Allt sem maður gat gert í gamla leiknum er þarna til staðar og svo mikið í viðbót að maður verður brjálaður af öllum möguleikunum. HEHE