13. janúar verða allir þeir sem vinna að gagnasöfnun fyrir CM4 að vera búnir að skila inn öllum upplýsingum um sitt land. Því hvet ég alla sem vilja hafa einhver áhrif á það hvernig íslenska deildin kemur út, að senda mér skilaboð hérna á huga eða senda mér póst á snabbi@isholf.is

Þökk sé nokkrum dugmiklum einstaklingum, þá eru lið eins og Afturelding, Haukar, HK og Stjarnan komin að fullu inn í gagnagrunninn hjá mér en lið eins og Fram og Keflavík eru frekar takmörkuð. Þeir sem vilja og ætla að halda uppi heiðri síns liðs í leiknum er hér með bent á að gera eitthvað í því.

Ábendingar um einstaka leikmenn eru líka vel þegnar.

Ef þið hafið einhverjar spurningar, ekki vera hræddir við að spyrja.