SIgames gáfu nú fyrr í dag út þá yfirlýsingu að í bígerð væri tímarit sem eingöngu væri helgað CM. Fyrsta tölublað mun koma út 24 okt og munu í því mjög líklega verða fyrstu upplýsingar um útgáfudag CM4 og einnig screenshots af leiknum sjálfum. Þar sem blaðinu mun fylgja geisladiskur er mjög líklegt að það fylgi líka demo af CM4 en ég þori ekki að lofa því eins og er.
Þetta blað verður gefið út af Future publishing sem gefur út tímarit eins og PCFormat og PCGamer meðal annara sem þannig að ekki verður kastað til höndum. Verðið í útlandinu verður 5.49 pund sem er líklega í kringum 1000-1200 kr, ef það verður þá selt hér á landi. Ef svo fer að ekki verður hægt að kaupa þetta blað hér á landi (ólíklegt!) þá er ég alveg tilbúinn að panta nokkur eintök fyrir áhugasama (augljóslega ekki ókeypis samt).

Kveðja, Daz/wbdaz/Falskur


<a href="http://www.sigames.com/news_view.php?act=2&id=46 1"> Fréttatilkynning frá SIgames </a