Flestir alvöru CM aðdáendur vita mjög líklega af þessum leikmanni.
En þeir sem ekki vita af honum þá er hann 27 ára D/DM C og er Senegali sem spilar hjá Shakhtar.
En það sem ég ætlaði að segja um hann var að fyrir stuttu var ég með save sem FC Haka í finnsku deildinni, mér gekk alveg ágætlega vann deildina og bikarinn á fyrsta árinu. Svo um sumarið keypti ég N´Diaye og setti hann rétt fyrir aftan miðjuna(ég var þá að nota leikkerfið 4-1-3-2 sem virkar fjandi vel). Hann brilleraði hjá mér fékk varla undir 8 í einkunn og eftir nokkra mánuði var hann kominn með álíka tölur og Patrick Vieira(og ég er ekki að ýkja).
Ég mæli eindregið með þessum manni í hvaða lið sem er, hann kemur með góðan móral í lið og er góður fyrirliði.

Klassaleikmaður…