Jæja þá er komið að enn einu Stoke ævintýri sem fór bara þrælvel.
Ég tók við liðinu og losaði mig við helling af staffi og eitthvað af leikmönnum sem mér fannst ekki passa inní programmið og kíkkti á free listann sem margir þekkja en fyrsta tímabilið fékk ég Daniel Nardiello, Kaba Diawara, Daniel Amakachi, Jamie Lewis, Scott Wilson, Petr Katchouro og nokkra minni spámenn til að selja á seinni stigum og lagði ég upp með 4-1-3-2 taktík sem hefur gefist mér afar vel áður t.d. með Atalanta,Lazio og fleiri lið
Það var bras á mér fyrst í stað en svo óx okkar mönnum ásmegin og fórum í efsta sætið í nóvember og vorum restina í og við toppinn og kláraði ég í fyrsta sæti og framrúðu meistari og í undanúrslitum bæði í FA og deildarbikurunum þar sem hið óvinnandi vígi Man Utd lagði mig 1-0 í báðum leikjunum á Old Trafford, en stjórnin alveg í skýjunm og fans líka. Þá er að snúa sér að næsta tímabili með bros á vör og kemur framhald af leikmönnum og árangri.