Ég hef ógurlega gaman af því að reyna eitthvað í CM sem hljómar erfitt eða óraunverulegt, helst þá að koma lélegum liðum á toppinn og þess háttar. Ætli ég kunni nokkuð að þjálfa stór lið ;)

En það sem ég vildi segja er þetta: Mig vantar nýja áskorun, eitthvað nógu útí bláin til að það sé helst fyndið. Hefur einhver góðar hugmynd? Sá sem kemur með bestu hugmyndina fær koss og knús ;)

Og svo væri ekki vitlaust þegar eitthvað sniðugt kemur upp að fá fleiri með sér í þetta, gera þetta að svona “keppni” en allt samt í góðu gríni og bróðerni, ég veit það að ef maður hefur svona óopinbera keppni þar sem engin er til að dæma þá á einhver eftir að svindla. Ekkert Íslandsmót hér, en þetta gæti verið skemmtilegt tilbreyting fyrir suma.

Hugmyndir takk!

wbdaz/Daz/Falskur.