Ég hef gaman af öllu í CM. Byrja með léleg lið og koma þeim upp og ná mér í orðspor og komast svo að hjá stórliði. Byrja með stórlið og ná orðspori strax og vera með landslið og allur pakkinn einfaldlega!!

En galli við Fog Of War er sá að þegar mar er með landslið, t.d. í mínu tilviki Brasilíska landsliðið. Þá gat ég ekki séð tölurnar hjá öllum brössum. Mér finnst að ég sem þjálfari brasilíska landsliðsins ætti að sjá stattana hjá brasilískum leikmönnum. Ég skoðaði þá, setti þá uppí landsliðið og ég vei … ég sé tölurnar með því að velja þá í landsliðið og ég get bara valið þá í liðið til að sjá tölurnar hjá þeim og hent þeim út ef mér lýst ekki á þá. En svo þegar ég hendi þeim út þá hverfa tölurnar aftur! Þetta finnst mér galli!
Hvað finnst ykkur?