Jæja eins og margir vita var ég 2.tímabil hjá Malaga og langaði aðeins að fara breyta til.

Skoðaði laus störf á Ítalíu eins og wbdaz benti mér á. Ég sá laust starf hjá Reggiana, ég man nú þegar það vear í seria A, var það ekki 95-96?
Jæja ég var tekinn við Reggiana og er ekki ennþá búinn að kaupa neinn leikmann en er samt búinn að keppa einn æfingarleik sem fór jafntefli 2-2.

Þetta var nú ágætur leikur hjá mér en veit kannski einhver um einhverja leikmenn sem vilja koma til liðs svona neðarlega og þá meina ég menn sem geta eitthvað og eru almennilegir.

Markmann og varnarmenn er ég mest að spá í eins og er en einn góður sóknarmaður sakar ekki.
Vörnin hjá mér er ekkert séstaklega sterk en það væri fínnt að fá góða og sterka.
Annars hlýtur að vera eitthvað úrval að sóknarmönnum eða kannski líka einum einum miðjumanni.

Maður ætlar nú að koma sér upp um deild og reyna að gera þetta að þvílíku stórveldi á svona 5 árum.
Annars veit ég að þið eigið fínar hugmyndir af leikmönnum.

Eitt að lokum: Ég sá engan sérstakan á tranfers listanum.