Jæja loksins er þetta áhugamál að vakna til lífsins eftir góðan draum.
Maður sér að það eru alltaf nýjar og nýjar kannannir sem koma inn og heill hellingur af greinum.
Síðan eru margir sem eru duglegir að senda inn myndir.
Þetta er mjög gott því eins og china sagði einu sinni í greininni champinn 01-02 þá mættu menn fara lífga áhugamálið við.
Og já það erum við að gera svo sannarlega.

Reyndar hefur ekkert skjáskot komið inn nýlega en vonandi að menn fari að koma með ný skjáskot. Mönnum finnst náttúrulega skemmtilegt að sjá svo, og líka séð hvað aðrir eru að gera.

Síðan þegar menn senda inn greinar mættu endilega koma myndir inn. Væri það ekki sniðugt?
Núna eru menn líka byrjaðir að tala um sögu savea sína og segja hvernig þeim gengur og er ég meðal þeirra.

Annars er þetta í fína lagi og á endanum þarf kannski mac2 að fá annan admin með sér ég mæli með wbdaz.