Nú þegar nýji leikurinn er að koma fer maður að spá í hvort maður ætti að gera tilraun til að setja íslensku deildina í leikinn. Við reyndum þetta nú í fyrra en þá voru menn ekkert að standa við það sem þeir lofuðu og allt fór í rugl.
Ég var líka bara einn í öllu bauki fyrir utan liðin sjálf. Ef við myndum fara út í þetta núna þá myndi það allls ekki vera þannig að ég væri einn eitthvað að vesenast í þessu og eina sem cm-fans hérna gerðu væri að væl um hvort þetta fari ekki að vera tilbúið.
Ég er ekki allveg viss um hvernig við þyrftum að gera þetta nákvæmlga en ég myndi komast að því gegnum sigames.com. Ég vona bara ekki að við þurfum að fara að breyta einhverjum 10mb af c++ kóða.

Er áhugi fyrir þessu?
Er ekki rétt að gera bara efstu deild?
Hverjir vilja hjálpa hver vill gera hvað?
Eigum við að gera síðu fyrir þetta?
Kann einhver á hex editor?

Sendið hugmyndir hingað fyrir neðan, í skilaboð, eða í e-mail á mac2@hamstur.is