Kína á HM Í mínu margfræga Darlington save-i tók ég við kínverska landsliðinu, liðið var búið að tryggja sér sæti á HM eftir að ég tók við því (HM 2006). Ég tók nú bara við liðinu uppá grín, var búinn að vera að reyna að komast að hjá landsliði og þar sem ég hafði stjórnað Kína áður með ágætum árangri (þá bara í vináttuleikjum) ákvað ég að slá til. Ég ætla að rekja árangur minn á HM hér í smáatriðum, enda var hann nokkuð athyglisverður!!!

10. júní 2006, Kína 2 - Frakkland 1:
Yes! Fyrsti leikurinn minn með liðið á móti besta landsliði síðustu ára. Anelka (25.) kom þeim yfir snemma í leiknum en í hálfleik fór ég að pressa og jafnaði Bai leikinn á 64. Ég hefði vel sætt mig við jafntefli en á 87. mínútu skoraði Ye sigurmarkið!
Frakkar áttu mun fleiri skot (8/5 hjá mér á móti 19/13 hjá þeim!) og markmaðurinn minn var maður leiksins.

17. júní 2006, Kína 2 - Svíþjóð 1:
Þessi leikur var nú hálf bragðdaufur, þeir komust yfir á 2. mín en við jöfnum á 7. með marki frá T.Li, S.Qu skorar síðan sigurmarkið á 23. mín. Við skutum meira en leikurinn fór mest fram á okkar vallarhelmingi.

22. júní 2006, Kína 4 - Nígería 2:
Vorum búnir að tryggja okkur áfram fyrir þennan leik þannig að ekkert stress var í gangi. Fyrst komust við yfir á 33. með marki frá D.Zheng en þeir jafna strax á 35. Á 67. mínútu skora bæði liðin og eftir ákvað ég að pressa og Bai setti tvö mörk á 73. og 77. og var valinn maður leiksins. Frekar auðveldur sigur í þessum leik (skotin voru 5/2 hjá Nígeríu á móti 15/12 hjá okkur) og sigur í riðlinum tryggður, ekki eitthvað sem ég átti von á fyrir mótið!

25. júní, 16-liða úrslit, Kína 3 - Úkraína 1:
Úkraínumenn voru á hælunum allan tímann og áttu aðeins tvö sko sem hittu rammann, við hins vegar 13. Bai setti tvö og S.Qu eitt.
Kína komið í 8-liða úrslit!

30. júní 2006, 8-liða úrslit, Kína 3 - Danmörk 3:
Það mætti segja að það hafi verið rúllað yfir okkur í þessum leik, náðum fjórum skotum á ramman og þrjú fóru inn. Zhang kom okkur í 1-0 á 10. mín. en Madsen kom Dönum í 1-2 á 23. og 32. mín. Þá ákvað ég nú að pressa enn einu sinni sem leiddi til þess að T.Li jafnaði á 46. mín. Á ný skoraði Madsen (59.) og alls virtist stefna í það að ævintýri okkar væri lokið en á 90. mínútu skoraði Ye og tryggði okkur framlengingu, marklaust þar og því varð að fara fram vítasprynukeppni. Gravesen klikkaði á 5. víti Dana og Kína komnir í 4-liða úrslit! Ég spáði lítið í hverjir tækju vítin þar sem ég þekkti ekkert af leikmönnum mínum :)

4. júlí 2006. Kína 3 - Sierra Leone 0
Sierra Leone sáu aldrei til sólar og misstu auk þess mann útaf á 52. mínútu. Ye skoraði tvö og T.Li eitt. Úrslitaleikurinn staðreynd!

9. júlí 2006, Kína 0 - Brazilía 1
Ég vissi það fyrir leikinn að hann yrði ekki auðveldur, Brassarnir höfðu unnið alla sína leiki í keppninni. Við stóðum þó í þeim og náðum 10 skotum, þó aðeins tveimur á rammann.


Þrátt fyrir að vinna ekki HM var þetta mjög skemmtilegt og góður árgangur með jafn lélegt lið og Kína! Meðal annarra liða sem voru á HM voru: USA, Tanzanía, Tajkistan og Sierra Leone, ekki beint lið sem maður sér á HM á hverjum degi!

Markmaður liðsins sem og T.Li voru valdir í draumaliðið.
_ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _