Hverjum datt í hug að 2 af bestu leikmönnum leiksins væri að finna á Möltu af öllum stöðum í heimi!

Michael Mifsud- Striker

Þetta er ótrúlegur snillingur! Í Man Utd save-inu mínu var hann að halda úti köllum eins og Batistuta og Palermo. Í guðanna bænum kaupið hann og ekki láta lélegar tölur halda ykkur frá honum því að þær skipta ekki einu einasta máli, því að hann skorar alveg ótrúlega mikið!

Chucks Nwoko- Att Mid For Right Center

Þetta er náttúrulega algjört undrabarn! Hann er 21 í byrjun og það er hægt að kaupa hann á hálfa milljón punda eða svo. Hann er kominn upp í 6 mill. punda áður en þú veist af, ef þú lætur hann spila!

Það sem er kostulegt við þessa leikmenn að Chucks er í Birkikara sem KR (held ég að það hafi verið) spilaði á móti í Evrókeppni hérna um árið!
og Michael skoraði fyrir landslið Möltu á móti Íslendingum þegar þessi landslið mættust á síðasta ári eða eitthvað!