Ég hef fengið frekar margar fyrirspurnir um svona keppni svo ég hef ákveðið að hafa umsjón með einni slíkri og sjá hvernig til tekst.

Reglur:

- Allir taka við liðinu Fiorentina á Ítalíu.
- Stranglega bannað að velja önnur lönd en Ítalíu.
- Database skal vera small.
- Markmiðið er að vinna alla titlana sem í boði eru á Ítalíu á sem skemstum tíma á sama tímabili. (Meistaradeildin er því bara bónus).
- Á hverju tímabili má mest kaupa 3 menn og selja 3 menn.
- Senda þarf mér skjáskot af kaupum og sölu hvers tímabils, fjárhagstöðu ásamt skjáskotum sem sanna sigurinn í öllum keppnunum.
- Ekki þarf að skrá sig neitt sérstaklega, þið sendið bara inn skjáskot ef þið hafið áhuga á að vinna.
- Nauðsynlegt er að notast við FM 2005.
- Ef einhverjir eru jafnir þá dæmi ég á ýmsum öðrum atburðum, svo sem gengi í keppnum utan Ítalíu og fjárhagsstöðu.

E-mail til að senda skjáskot : haloo@gmail.com

Ég hvet alla til að taka þátt svo kemur bara í ljós hvort ég breyti reglunum eitthvað og geri þetta erfiðara eða léttara næst. Ef einhverjar skoðanir eða spurningar vakna þá skuluð þið ekki hika við að tjá ykkur hér að neðan.