Mér finnst orðið mjög mikið um það að einhverjir aðilar sem eiga ekkert líf séu að fara inn á síður eins og þessa (Champ síðuna) til þess eins að pirra menn og segja hvað áhugamálið þeirra er leiðinlegt og asnalegt (td LogDog). Þessir náungar eru nátturúlega bara einhver óþolandi kvikindi sem eru það leiðinlegir að þeir hafa aldrei átt vini og aðalstuðið er að pirra fólk og það undir dulnefni. Mér finnst lágmark hjá mönnum sem eru að koma með einhverja neikvæða gagnrýni og skítkast út í áhugamál annarra að þeir komi fram undir réttu nafni.

Ég held að langbesta lausnin sé sú að svara þeim ekki því ef við svörum þeim þá er tilgangi þeirra náð því þá sjá þeir að við verðum pirraðir á þessu. Ignorum þessa aumingja alveg og svörum þeim ekki því þá finnst þeim þetta ekkert gaman lengur.

Sigurður J. Stefánsson