Jæja hvaða cm-nörd finnst ekki gaman að ‘signa’ góða leikmenn á free transfer eða eftir að samningur þeirra er útrunninn?
Ef þú fylgir þessum skrefum getur þú fengið hvaða leikmann sem er (svo framarlega að hann vilji koma til þín) ókeypis!

1) Þú býður fáránlega háa upphæð í leikmanninn sem þú vilt kaupa (max 50 millj. pund)
2) Þegar liðið hefur samþykkt tilboðið smellir þú á ‘offer contract’
3) Næsta skref er muy imortante: Þegar þú ert staddur í ‘offer contract’ valmyndinni smellir þú á ‘News’ eða svörtu lengjuna neðst á skjánum (þar sem fyrirsagnir frétta birtast) Alls ekki ýta á ör afturábak þ.e. ‘back’
4) Því næst velur þú leikmanninn sem um er að ræða og gerir nú ‘withdraw transfer bid’
5) Nú skaltu smella á ‘make transfer bid’ og bjóða 0 eða þá upphæð sem þú kýst.
6) Því næst ýtirðu á ör afturábak eða ‘back’ þangað til þú ert staddur í ‘offer contract’ valmyndinni á ný.
7) Síðasta skrefið er að bjóða leikmanninum góðan samning og þegar/ef hann samþykkir samninginn færðu hann ókeypis.

Ég hef sjálfur prófað þetta trix og þetta alveg svínvirkar!
Eina sem maður verður að passa sig á er að ‘wage budget’-ið rýkur upp úr öllu valdi ef maður er duglegur að verzla. En þá er alltaf hægt að losa sig við einhverja stjörnuna og fá dágóða summu í staðinn.

Athugið: Það er ekki hægt að lokka Beckham til Barnsley.

Takið vel eftir: Þetta er svindl og sómakærir heiðursmenn ættu því ekki að notfærast við þetta ómerkilega bragð!