Sjónarhorn Tekin í stúdíói, man ekki uppsetninguna á ljósum, en mig minnir að ég hafi bara notað eitt.

Tekin á EOS 5D með gamalli Nikkor 35mm f/2,8 linsu (með mount adapter).

Mér fannst þetta skemmtilegt sjónarhorn, en þetta var ein af fáum myndum sem kom í fókus því linsan er manual og þetta var rétt áður en ég fattaði hvað ég sé illa með því auga sem ég nota yfirleitt …

Gagnrýni er vel þegin. Sérstaklega ef það er eitthvað um ljósin, ég er algjör byrjandi í því.