Belgía 2 Jæja ég senti -þessa- mynd inn um daginn, en þarna stóð ég á brú. Núna sendi ég það sem blasti við mér þegar ég sneri mér við á brúnni.
Ég er ekki nógu ánægður með hvað himininn er brunninn í spegluninni en ég náði ekki að laga það nógu mikið án þess að fokka upp í afgangnum af myndinni. Svo sést þarna líka í spaða á myllu sem var þarna rétt hjá, en ég ákvað að leyfa því bara að sjást.
Ég er ekki eins ánægður með þessa og ég er með hina, en það vantaði myndir svo :)

Upprunalega myndin