Bicycle person Ég tók slatta af myndum af löppum á fólki að labba niðri á Hlemmi. Þessi fannst mér best. Það er eins og vinstri fóturinn stjórni allri myndinni og umhverfinu. Og mér finnst líka flott hvernig hreyfingin minnkar þegar nær dregur að jörðinni.