Tenging – Mín uppáhalds Ég var ekki alveg viss hvort ég ætlaði að taka þátt í þessari keppni en það er þó allt í lagi að vera með. Myndin var tekin 4. júlí síðastliðinn. Eigendur handanna eru amma mín og litla systir mín. Ég vann hana mjög mikið í Photoshop. Ég man ekki nákvæmlega hvað ég gerði þar en ég notaði heilan helling af levels og curves til að gera hana svona dramatíska og undarlega.

Ég sendi hana í keppni á dpchallenge.com sem heitir 10. Henni gekk alveg gífurlega vel þar og mér datt í hug að hún gæti passað hingað. Þetta er ekki uppáhalds myndin mín en þetta er þó sú mynd sem hefur gengið best í keppnum.