Á leið á Akranes Tók þessa á laugardeginum þegar ég var á leið upp á Akranes á írsku dagana. Get ómögulega komið því fyrir mig hvaða fjall þetta er, endilega upplýsið mig ef þið vitið, alveg dottið úr mér.

Finnst þetta svolítið skemmtileg mynd. Skugginn er að læðast yfir fjallið, meðan birtan er allsráðandi neðan við það, og svo skemmir ekki regnboginn.

Tekin á Canon Digital IXUS 50, ISO á 50, hæstu gæði og auðvitað ekkert flass. Myndin er croppuð pínulítið að neðan þar sem hún var tekin út um opinn glugga á bíl og var þar af leiðandi frekar hreifð þarna neðst.